Garðyrkjustöðin Engi

Völundargarðurinn

Á Engi er að finna völundarhús úr trjágróðri, hið eina sinnar gerðar á Íslandi. Það er gert úr íslenskum gulvíði, útbúið vorið 2005 og er ríflega 1.000 fermetrar að flatarmáli. Þrautin felst í að finna réttu leiðina inn að miðju án þess að stíga í gegnum limgerðin. Sú leið getur verið flóknari en virðist við fyrstu sýn. Loks þarf að rata réttu leiðina út aftur.

Völundargarðurinn hefur vakið mikla lukku hjá þeim sem sækja Engi heim, jafnt ungum sem öldnum.
Hann þéttist með hverju árinu og sífellt er erfiðara að finna leiðina inn að miðju.

Nú hefur verið reistur útsýnisturn í miðju völundargarðsins, úr timbri úr skóginum á Engi. Smiðurinn er völundurinn Reynir Björnsson, faðir Sigrúnar.

Við förum fram á hóflegt gjald fyrir inngöngu í völundargarðinn, enda krefst hann mikils viðhalds á hverju ári.

Flestum þykir hugmyndin um völundarhús, sem leiða mann eftir ókunnri slóð að óþekktum miðpunkti, bæði dularfull og ögrandi. Þau búa yfir sérstöku aðdráttarafli og hafa verið teiknuð og byggð úr margs konar efniviði í þúsundir ára víða um heim.

Völundarhús úr limgerðisgróðri urðu fyrst þekkt í Evrópu á seinni hluta 17. aldar. Vinsældir þeirra hafa aldrei verið meiri en nú og limgerðis-völundarhúsum í almenningsgörðum fer sífellt fjölgandi.

engi_loftmynd
6420_104874934559_97256809559_2021866_846553_n

To order your flowers call 1-800-464-9889

5408_98016934559_97256809559_1913259_7946459_n
254974_10150202993204560_97256809559_6907313_39527

You are viewing the text version of this site.

To view the full version please install the Adobe Flash Player and ensure your web browser has JavaScript enabled.

Need help? check the requirements page.


Get Flash Player