Þessar uppskriftir innihalda grænmeti, kryddjurtir og ávexti sem ræktaðir eru á Engi
og hafa reynst okkur vel. Á síðunni Kryddjurtir er einnig að finna ótal hugmyndir að
notkun mismunandi kryddjurta.
Grænkálssnakk
Sigrún á Engi hefur boðið upp á ristað grænkál á grænmetismarkaðnum undanfarin ár og
þar hefur það slegið í gegn, jafnt hjá börnum sem fullorðnum. Hér er uppskriftin.
Grænkál
Ólívuolía
Salt
Skerið stöngulinn úr grænkálinu og saxið laufið, en ekki of smátt. Setjið grænkálið í ofnskúffu með bökunarpappír, hellið smá ólífuolíu yfir og blandið vel með ofurlitlu af salti. Þurrkið í ofni í 10-20 mínútur við 100°C með blæstri.
Nú eru þið komin með ljúffengt snarkandi snakk sem einnig er hollt og járnríkt.
Kartöflusalat
700 g kartöflur
Nokkrir stilkar af blaðselleríi
Púrrulaukur
1 dós sýrður rjómi
2 dl majónes
1 grein af rósmaríni
Salt og pipar
Kartöflurnar eru soðnar og kældar, svo flysjaðar og skornar í bita. Blaðlaukur og sellerí skorið niður og sett út í kartöflurnar.
Rósmarínlaufið smátt saxað og sett út í ásamt sýrðum rjóma og majónesi og blandað varlega. Kryddað með salt og pipar.
Grænmetis-nachos
1-2 laukar
1-2 kúrbítar (zucchini)
1 paprika
1 dós chilli-baunir
Ólífur
Olía til að steikja úr
Einn poki af tortillaflögum
Rifinn ostur
3-4 tómatar, saxaðir smátt
Kóríander
Sýrður rjómi
Tómatsalsa
Stillið ofninn á 200 gráður.
Skerið laukana, kúrbítana og paprikuna. Látið baunirnar í sigti og látið vökvann leka af þeim, ekki skola í vatni.
Hitið olíuna á pönnu og steikið grænmetið (best að gera það í tveimur hollum). Hafið pönnuna á háum hita og leyfið grænmetinu að verða svolítið svart.
Raðið tortillaflögunum í botninn á eldföstu móti. Hellið baununum yfir og svo grænmetinu. Stráið osti yfir. Setjið inn í ofn í nokkrar mínútur þar til osturinn fer að bráðna.
Skreytið með söxuðum tómötum og kóríander. Berið fram með salsa og sýrðum rjóma.
(Frá Helgu Birgisdóttur, uppunalega hér)
Fíflavín
1 gallon fíflahausar (þétt troðið)
Safi úr 2 appelsínum
Safi úr 1 sítrónu
4 tsk negull eða 2 bitar af engiferrót
1 gallon sjóðandi vatn
1,5 kg sykur + tilbúið ger
½ kg saxaðar steinlausar rúsínur.
Setjið gula hlutann af blómunum í fötu og setjið safa og krydd út á. Hellið sjóðandi vatninu yfir og látið bíða í 3 daga. Hrærið í daglega. Síið, bætið sykrinum og gerinu út í og hrærið, þar til sykurinn er leystur upp. Hellið í stóra krukku, bætið rúsínunum út í. Innsiglið með “loftloki” (til að hleypa loftinu út) og leyfið að gerjast. Hellið af og setjið á flöskur þegar loftbólur eru hættar að myndast.
Þetta er dýrindis drykkur ef hann heppnast vel. (Frá Jónínu Þ. Bjartmarsdóttur)
Chimichurri
Chimichurri er fersk kryddjurtasósa frá Argentínu sem er ómissandi með argentínska nautakjötinu, en er einnig frábær til að marinera annað kjöt, sem og fisk.
2 bollar fersk steinselja og/eða kóríander
1/4 bolli fersk óreganólauf
3-6 hvítlauksgeirar
2 matskeiðar saxaður laukur
1/2 bolli ólífuolía
2 matskeiðar rauðvínsedik (má sleppa)
1 matskeið lime-safi (má sleppa)
Paprikuflögur (eða mjög fínt söxuð paprika)
Salt
Vinnið hvítlauk og lauk í matvinnsluvél þar til fínt saxað. Bætið svo kryddjurtunum við og vinnið áfram þar til þær eru fínt saxaðar.
Færið blönduna í aðra skál og bætið við olíunni, lime-safanum og edikinu og hrærið. Bragðbætið með salti og paprikuflögum og kælið.
Nokkrar hugmyndir að notkun grænmetis í ræktun á Engi Hnúðkál er afar ljúffengt hrátt, en einnig má elda það. Hægt er að rífa það með rifjárni út í salat eða bera það fram rifið
með smá ediki eða salatdressingu. Það má einnig gufusjóða eða sjóða í saltvatni í nokkrar mínútur, líkt og rófur. Ysta lagið
á hnúðkálinu er hart og er jafnan skorið burtu. Rófur má skera niður í ræmur, setja á ofnskúffu með smá olíu og kryddi og baka í heitum ofni eins og franskar kartöflur. Góð leið til að blanda kryddi og olíu vel saman við rófurnar er að setja hrista allt saman í plastpoka áður en það er sett á ofnskúffuna. Silfurblaðka (stilkbeðja) er jurt með litríka stöngla sem setur ferskan blæ á hvaða rétt sem er. Hana er gott að léttsteikja á pönnu, bæði blöð og stöngla, líkt og spínat. Pak choi (bok choy) er salattegund sem er afar vinsæl í Asíu. Hægt er að borða alla hluta plöntunnar, bæði ferska, t.d. út í
salat, eða eldaða, t.d. steikta á pönnu. Hér er einföld uppskrift að pak choi með sesam, chili og hvítlauk.
Fleiri góðar uppskriftir
Kjúklingur með taílenskri basilíku (á ensku)
Grænkálssalat Sirrýar Svöludóttur úr grænmeti frá Engi
Grænkálssnakk
You are viewing the text version of this site.
To view the full version please install the Adobe Flash Player and ensure your web browser has JavaScript enabled.
Need help? check the requirements page.