Garðyrkjustöðin Engi

Um okkur

Garðyrkjustöðin Engi var stofnuð 1985 af Ingólfi Guðnasyni og Sigúnu Elfu Reynisdóttur garðyrkjufræðingum. Garðyrkjustöðin stendur á 5,6 hektara landi í Laugarási í Bláskógabyggð.

Á Engi eru stunduð lífræn ræktun kirsuberjatómata og fjölda kryddjurta og salattegunda, einnig útiræktun matjurta og ávaxtarækt. Þar að auki gert hafa verið gerðar tilraunir með að rækta lækningajurtir svo sem hvönn og vallhumal. Auk nytjaplantna hafa verið gróðursettar hátt í hundrað tegundir af runnum og trjáplöntum á Engi.

Á veturna er áherslan á ræktun kryddjurta í pottum. Þær fást í verslunum á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Meðal verslana sem selja vörurnar frá Engi eru Frú Lauga á Laugalæk, Yggdrasill, Melabúðin, Blómaval og Garðheimar. Einnig Hagkaup, Nóatún, Krónan og Fjarðarkaup en þar er hægt að fá kryddjurtir í pottum sem eru í ræktun allt árið um kring.

Á sumrin er mikið um að vera á Engi því þá eru til viðbótar við kryddjurtirnar ræktaðar ótal tegundir matjurta og seldar á grænmetismarkaðnum í garðskálanum á staðnum.

Á þessu vefsvæði er að finna margvíslegar upplýsingar um garðyrkjustöðina og framleiðslu hennar.

Hafa samband

35694_410186819559_97256809559_4317625_4507229_n
38486_421858699559_97256809559_4604890_5229827_n

To order your flowers call 1-800-464-9889

leidin ad engi

Hér er kort af leiðinni í Laugarás frá Reykjavík, í gegnum Grímsnesið. Eins og sést á kortinu er einnig hægt að fara í gegnum Selfoss aka Skeiðaveginn og svo Skálholtsveginn.
Það tekur rúman klukkutíma að aka frá Reykjavík í Laugarás.

Ef komið er í gegnum Skálholt inn í Laugarás skal taka fyrstu beygju á vinstri hönd til að komast að Engi. Ef ekið er í gegnum Selfoss eða komið að austan skal hins vegar taka síðustu beygju til hægri á leið út úr þorpinu.

Skilti vísa veginn að Garðyrkjustöðinni Engi.

engi_kort1

You are viewing the text version of this site.

To view the full version please install the Adobe Flash Player and ensure your web browser has JavaScript enabled.

Need help? check the requirements page.


Get Flash Player