Árið 2009 var opnaður bændamarkaður með lífrænt ræktaðar garðyrkjuafurðir á Engi, enda var þá engan slíkan að finna. Til sölu voru tugir tegunda sem voru ræktaðar á Engi. Móttökur hafa farið fram úr björtustu vonum og þúsundir gesta hafa komið í heimsókn frá opnun markaðarins.
Lögð er áhersla á að gera stöðina þannig úr garði að gestir geti notið dvalarinnar sem best. 1000 fermetra völundarhús er á Engi, úr klipptu gulvíðilimgerði. Einnig býðst gestum að skoða krydd- og ilmjurtagarð ásamt því að fá nasasjón af starfi í íslenskri garðyrkjustöð. Nú í sumar verður haldið áfram með bændamarkaðinn og reynt að finna fleiri enn leiðir til að taka vel á móti gestum með persónulegri þjónustu.
Garðyrkjustöðin Engi tekur þátt í verkefninu „Beint frá býli“, „Opnum landbúnaði“ og „Matarklasa Suðurlands“ ásamt fleiri samstarfsverkefnum við bændur, listafólk og vöruhönnuði.
Síðastliðin ár hafa á Engi verið stundaðar athuganir á ávaxtatrjám í óupphituðum gróðurhúsum og utanhúss og hefur verið hægt að bjóða til sölu bæði epli og kirsuber úr íslenskri ræktun.
Hér er listi yfir þær tegundir matjurta sem eru í ræktun á Engi.
Hugmyndafræðin og staðurinn
Mikið er lagt upp úr að heimsóknin á Engi sé sem eftirminnilegust. Áherslan er á heilnæmt og fallegt umhverfi þar sem öll skilningarvit eru virkjuð. Í fallegu umhverfi líður fólki best og rannsóknir sýna að sjúklingar á batavegi ná skjótar heilsu hafi þeir aðgang að garði þar sem þeir geta notið náttúrunnar. Á Engi er margt að skoða og snerta, bragða á, ilma af og hlusta á og geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi.
Í jurtagarðinum er að finna nokkrar helstu krydd- og ilmjurtir sem geta vaxið utandyra á Íslandi. Mjög gott er að strjúka blöð kryddjurtanna til að njóta ilmsins sem best. Þar eru jurtir eins og tóbak, lárviður og ólífutré en einnig alíslenskar nytjajurtir eins og blóðberg, maríustakkur og blágresi.
Ef grannt er hlustað má heyra í vindhörpum í trjánum sem hljóma þegar vindurinn blæs.
Sigrún hefur sótt fjölda námskeiða í hannyrðum og myndlist hérlendis sem og í Danmörku og víða á Engi má sjá ummerki þess. Hún vinnur með ýmis efni, t.d. ull, steina, gler, málningu og jurtir í listsköpun sinni og fer ótroðnar slóðir. Maríuhænur má finna á víð og dreif um svæðið og gestir eru hvattir til að velta þeim við því á hverri þeirra er áletrun til umhugsunar fyrir þann sem hana les.
Á Engi er reynt að endurnýta ýmislegt efni sem til fellur og lágmarka þannig neikvæð áhrif á umhverfið. Þess gætir meðal annars í umbúðum sem notaðar eru á markaðnum og í endurnýtingu á ýmsum innanstokksmunum og byggingarefni.
Reynir Björnsson smiður sinnir margvíslegu viðhaldi á staðnum og á heiðurinn af mörgum þeirra bygginga sem þar er að finna. Hænsnahúsið á staðnum byggði hann úr endurnýttu smíðaefni og útsýnisturninn í miðju völundargarðsins byggði hann úr grisjunarviði og trjábolum frá á Engi og úr Haukadal.
Á Engi er líf og fjör á sumrin og hefur þar verið sett upp markaðstjald nokkrar helgar á sumrin þar sem seldur er ýmiss varningur, handverk og afurðir úr sveitinni. Boðið hefur verið upp á súpu úr grænmeti ræktuðu á staðnum og árið 2010 var haldin ljóðasýning á kvæðum Björns Guðmundssonar frá Bæ á Ströndum.
Á flipanum Myndir má sjá svipmyndir af markaðnum á Engi og starfseminni þar. Auk þess er mikið af myndum á Facebook-síðu markaðarins, sem uppfærð er reglulega.
Ilmjurtagarðurinn er merktur með heitum jurtanna.
sumarið 2011:
Föstudagar, laugardagar og sunnudagar
kl. 12-18. Markaðnum lýkur í ágústlok.
Aðgangseyrir í völundargarðinn: 200 kr.
Athugið að hundar skulu vera í bandi.
Verið hjartanlega velkomin!
Loftmynd af Engi. Takið eftir völundargarðinum efst til hægri.
You are viewing the text version of this site.
To view the full version please install the Adobe Flash Player and ensure your web browser has JavaScript enabled.
Need help? check the requirements page.