Framleiðslan á Engi byggir á lífrænni ræktun. Fylgt er alþjóðlegum reglum sem skilgreindar eru af Alþjóðasamtökum lífrænna landbúnaðarhreyfinga (IFOAM) og ræktunarferlið er undir eftirliti Vottnunarstofunnar Túns. Byggt er á grundvallaratriðum sem:
*Eru í sátt við en ganga ekki gegn lögmálum náttúrulegra vistkerfa
*Viðhalda eða auka frjósemi jarðvegs
*Halda mengun og öðrum skaða á umhverfinu í lágmarki
*Stuðla að mannúðlegri meðferð dýra
*Stuðla að náttúruvernd og tilvist villtra dýra og plantna
*Taka tillit til þjóðfélags- og vistfræðilegra áhrifa landbúnaðar í víðasta samhengi
Jarðvegurinn
Ein af þeim forsendum sem unnið er eftir í lífrænni ræktun gerir ráð fyrir að jarðvegurinn sé líkt og hluti af plöntulíkamanum. Þess vegna vaxa lífrænar plöntur í lífrænum jarðvegi en ekki í steinull eða vatnsrennum svo dæmi séu tekin. Í jarðveginum á sér stað, fyrir tilstilli jarðvegslífvera, niðurbrot lífrænna efna sem falla til í hinni náttúrulegu hringrás. Þar kemur að efnin verða aðgengileg rótunum og þau nýtast plöntunni. Á þann hátt er lifandi jarðvegur eðlilegur liður í næringarnámi plantnanna.
Lífrænn áburður
Með lífrænni áburðargjöf reynum við að líkja sem mest eftir þeim aðstæðum sem plantan þarf til að ná eðlilegum vexti og þroska. Lífrænn úrgangur sem fellur til í gróðrarstöðinni er endurnýttur á þann hátt að búin er til safnhaugamold sem er ágætis næringarauki. Annar lífrænn áburður er t.d. húsdýraáburður, þörungamjöl og fiskimjöl. Tilbúinn áburður er ekki notaður við lífræna ræktun og ekkert lífrænt efni er fjarlægt úr stöðinni. Trjágreinar eru notaðar til smíða eða t.d. sem kurl í safnhaugagerð, sem undirburður í gangstíga eða til að varna illgresi að vaxa í trjábeðum. Mold, gras og annað er sett í jarðgerð og notað sem næringarauki síðar meir.
Illgresi í görðum
Til að halda niðri illgresi er gott að reyta burt mest af arfanum, leggja dagblöð ofan á beðið og strá trjákurli yfir. Þetta heldur illgresi frá í um það bil tvö ár. Einnig má nota grasið sem slegið er í görðum til að kæfa illgresi. Vínedik drepur gróður, sé því úðað á hann.
Lífrænar varnir
Í lífrænni ræktun eru ekki notuð eiturefni heldur eru notaðar lífrænar aðferðir til að halda niðri meindýrum, sérstaklega í ylrækt. Dæmi um slíkt eru sníkjuvespur og ránmaurar sem lifa á blaðlús, mjöllús og spunamaur. Auk þess er notast við örsmáa þráðorma, maríubjöllur skortítur og fleiri dýr.
Meindýr í jurtapottum - hvað er til ráða?
Algengustu dýrin sem sjást á kryddjurtum eru blaðlús og mjöllús. Einnig verður stundum vart við svarðmý, sem er örlítil, svört fluga. Svarðmý er í raun ekki skaðlegt fyrr en þess verður vart í miklum mæli en það er hvimleitt. Ekki er hætta á að það valdi skaða þótt þess verði vart í pottablómum. Góð leið til að halda svarðmýi niðri er að halda efsta moldarlaginu þurru, hafið 1 sm lag af svörtum sandi efst í pottinum. Alltaf skal vökva plönturnar neðan frá, þ.e. láta ræturnar draga vatn upp úr skál sem potturinn stendur í og hella umframvatninu burt.
Dæmi um einfalda ráðstöfun gegn skordýrum er skolun með daufri grænsápulausn.
Hér er einföld uppskrift sem gott er að nota:
4 dl vatn
0,5 dl grænsápa
0,5 dl rauðspritt
Þessi blanda er sett á lítinn úðabrúsa. Úðað er á laufblöðin þar til þau eru orðin rök. Ef skordýr sjást aðeins á einu eða fáum laufblöðum er hins vegar best að fjarlægja þau og fylgjast síðan vel með plöntunni og grípa til blöndunnar ef þess reynist þörf. Viðkvæmar plöntur eins og basilíku má skola með volgu vatni hálftíma eða klukkutíma eftir meðhöndlun.
Önnur einföld blanda er útbúin þannig að 1–2 msk af matarsóda er blandað í einn lítra af vatni og því úðað á laufið. Það er gott að setja örfáa dropa af uppþvottalegi í blönduna til að tryggja að efnið dreifist vel. Þessi lausn er árangursrík vörn fyrir plöntur sem hætt er við skaða af sveppum, t.d. grásveppi.
Til að losna við blaðlús er oft nóg að fara með plöntuna undir sturtuna og skola hana vel með volgu vatni, sérstaklega neðra borð blaðanna.
You are viewing the text version of this site.
To view the full version please install the Adobe Flash Player and ensure your web browser has JavaScript enabled.
Need help? check the requirements page.